ER VE(F)SEN?
Góð vefsíða eykur sölu, það hefur margsannast. Við erum hægri hönd þín í þeirri vegferð.
50+ fyrirtæki hafa nýtt sér þjónustu Herrabyte.
Við höfum sett upp vefsíður og/eða ýmis kerfi fyrir 50+ fyrirtæki.
Hvernig getum við
aðstoðað þig?
Hönnun
Allar vefsíður sem við fáum í hendurnar skilum við frá okkur snyrtilegum og betri en þegar við fengum þær. Mikill metnaður er innan veggja Herrabyte í að smíða fallegar vefsíður fyrir viðskiptavini okkar.
Hýsing
Við sjáum um hýsingar fyrir flestar þær vefsíður sem að við þjónustum. Einnig höfum við verið að þjónusta vefsíður sem eru með sína eigin hýsingu.
Umsjá
Þegar að vefsíður eru í okkar umsjá, þá sjáum við til þess að síðan sé alltaf uppfærð vikulega. Einnig fylgjum við öllum öryggisstöðlum og því öryggið alltaf í fyrirrúmi. Þú þarft varla að hugsa um vefsíðuna þína!
Netpóstur
Herrabyte notar Google Workspace að mestu fyrir netpósta. Það umhverfi býður upp á frábærar fyrirtækjalausnir sem henta vel fyrir allar stærðir fyrirtækja.
Sérhönnun fyrir síma
Við hönnum allar okkar vefsíður með farsíma í huga.
Vefsíður sem eru hannaðar með síma í huga veita notendum betri upplifun. Þeir fá auðveldari aðgang að upplýsingum og þægilegt viðmót sem eykur líkurnar á endurkomu.
Leitarvélar eins og Google gefa vefsíðum sem eru hannaðar fyrir síma hærri einkunnir. Þetta eykur sýnileika þinn á netinu og þar af leiðandi fjölgar heimsóknum á þína vefsíðu.
Ef þú ert með vefverslun, er mikilvægt að hún virki vel í snjallsímum. Viðskiptavinir eru líklegri til að klára kaup ef vefsíðan er notendavæn í snjallsíma.
31
Vefsíður
35
Netföng
10
Vefverslanir
3
Starfsmenn
Margra ára reynsla
Þrátt fyrir að vera fáir, búa starfsmenn Herrabyte yfir ótal ára reynslu í tölvuvinnu.
Við hjá Herrabyte bjóðum upp á heildarlausnir í vefsíðugerð, þar með talið hönnun, þróun og efnisgerð. Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar til að tryggja að vefsíðan þeirra uppfylli öll þeirra þörf og væntingar. Viðskiptavinir okkar koma oft aftur til okkar með ný verkefni, sem er vitnisburður um þá traustu og persónulegu þjónustu sem við veitum.
Til þess að skilja markmið og þarfir viðskiptavina okkar, tökum við okkur tíma til að skilja hvert og eitt verkefni. Þannig getum við skilað einstaklingsmiðarari þjónustu. Allir okkar vefir standast hæstu gæðastaðla, bæði í hönnun og öryggi.
Kristófer Arnþórsson
Það er varla hægt að finna það áhugamál sem að Kristófer hefur ekki áhuga á. Allt frá rafmagni yfir í list. Undanfarin ár hefur Kristófer rekið Herrabyte ásamt öðru fólki. Einnig hefur hann rekið Prenthaus, og er meðeigandi að Kaffið.is
Hákon Orri Gunnarsson
Hákon hefur undanfarin ár verið við nám við Háskóla Íslands í Almennri bókmenntafræði, með ritlist sem aukagrein. Þar áður útskrifaðist hann með BSc í Líffræði frá háskólanum Open University sem er í Bretlandi.